Kári og Rakel Norðurlandameistarar á einstökum áhöldum
Í gær sunnudag var keppt á einstökum áhöldum á Norðurlandamóti unglinga og drengja í áhaldafimleikum hér í Álaborg.
Rakel Sara gerði sér lítið fyrir og sigraði stökk með tveim glæsilegum stökkum og fékk 12.617 í einkunn fyrir þau sem er frábær árangur.
Kári varð síðan tvöfaldur Norðurlandameistari á einstökum áhöldum þar sem hann sigraði bæði á tvisla og svifrá með algjörlega magnaðar æfingar í dag. Þar bætir hann í safnið og er því þrefaldur Norðurlandameistari í áhaldafimleikum.
Ísak Þór Ívarsson vann sér síðan inn bronsverðlaun á stökki með glæsileg tvö stökk á sínu fyrsta Norðurlandamóti í drengjaflokki.
Frábæru Norðurlandamóti lokið hér í Álaborg. Innilegar hamingjuóskir með frábært mót til allra keppanda, þjálfara og foreldra, við erum ótrúlega stolt af keppendum okkar.




