Gerpla hefur boðið upp á þjálfun fyrir börn 1.-4. ára, við góðan orðstír.
Kríla- og Bangsafimleikar er fimleikamiðaður íþróttaskóli þar sem börnin mæta með foreldrum sínum til æfinga og foreldrar aðstoða börnin að fara í gegnum upphitun og síðan þrautabrautir um salinn sem hafa verið sérstaklega settar upp fyrir þau.
Bangsarnir eru 1,5 – 2 ára og þau æfa í 45 mín í senn.
Krílin eru 2 -4 ára og þau æfa í 60 mín í senn. Í krílatímunum er byrjað að innleiða nokkrar léttari grunnæfingar fimleika sem mun auðvelda þeim færsluna upp í grunnhóp þegar þau fara á síðasta árið sitt í leikskóla.
Lögð er áhersla á leik, hreyfiþjálfun, jákvæða upplifun barnanna og samverustund með foreldrum. Börnin læra að upplifa umhverfið í salnum, á líkama sinn og fá útrás fyrir hreyfiþörfina.
Í hverjum hópi er takmarkaður fjöldi og ef hóparnir fyllast þarf að skrá barnið á biðlista. Ef þið óskið eftir að komast að í þessa tíma eftir að önn er hafin hjá okkur, þá þarf að senda póst á deildastjóra, thordiseh@gerpla.is
Selma Birna Úlfarsdóttir íþróttafræðingur er yfirþjálfari krílafimleika í Gerplu.
Gylfi Guðmundsson íþróttakennari er yfirþjálfari bangsafimleika í Gerplu Versölum.
Alexandra Sigurdórsdóttir íþróttafræðinemi er yfirþjálfari bangsafimleika í Gerplu Vatnsenda.