Gerpla hefur verið leiðandi í fimleikastarfi fyrir fatlaða í áraraðir.
Hjá Gerplu erum við með þrjá hópa sem sérhæfa sig í þjálfun fatlaðra. Tvo grunnhópa eftir aldri sem allir iðkendur byrja í og fá æfingar við hæfi hjá þjálfurum félagsins. Við erum með einn framhaldshóp og þar eru iðkendur sem komnir eru langt í íþróttinni og hafa margir af þeim tekið þátt á erlendum mótum eins og Special Olympics og Evrópuleikum Special Olympics.
Allar upplýsingar veitir deildarstjóri, Rakelm@gerpla.is