fbpx

Íslandsmót í þrepum

Íslandsmótið í þrepum fór fram fyrir norðan á Akureyri að þessu sinni um liðna helgi, keppt var í 1.-3. þrepi. Keppendur okkar í Gerplu voru ótrúlega spennt að fara norður að keppa margir hverjir í fyrsta sinn. Umgjörð mótsins til fyrirmyndar og alltaf gaman að koma norður.

Gerpla sendi keppendur í öllum þrepum kvenna og karla. Frábær árangur hjá þeim og margir að bæta sig mikið á milli móta og aðrir með persónulega sigra að ná að keppa aftur eftir erfið meiðsli.

Gerpla eignaðist tvo  Íslandsmeistara um helgina, Þá Botond Ferenc Kováts sem keppti í 2. Þrepi og Kára Pálmason sem keppti í 1. Þrepi. Frábær árangur hjá þessum strákum okkar. Einnig fengum við bronsverðlaunahafa í 3. Þrepi pilta var það hann Ármann Andrason sem átti glæsilegt mót.

Stúlkurnar náðu einnig góðum árangri á mótinu í 3. Þrepi voru það Elfa María Reynisdóttir sem fékk silfurverðlaun í flokki 11 ára og yngri og Hekla Tomasdottir Albrigtsen sem fékk bronsverðlaun í 3. Þrepi 13 ára og eldri.

Í 2. Þrepi voru það vinkonurnar Ísabella Róberstdóttir og Sólný Inga Hilmarsdóttir sem röðuðu sér í annað og þriðja sæti í flokki 12 ára og yngri.

Við erum virkilega stolt af öllum okkar keppendum, og óskum þeim, foreldrum og þjálfurum innilega til hamingju með frábært keppnistímabil.

You may also like...