fbpx

Fimleikafólk heiðrað á íþróttahátíð Kópavogs

Þetta glæsilega fimleikafólk var heiðrað á íþróttahátíð Kópavogs sem haldin var í Versölum 7.janúar. Valgerður er fimleikakona í fullorðinsflokki, Martin Bjarni og Birta Ósk fimleikamenn í unglingaflokki, Agnes fékk viðurkenningu fyrir Norðurlandameistaratitil í áhaldafimleikum kvenna og Eyrún Inga, Karitas Inga, Gyða, Stella og Birta Ósk viðurkenningu fyrir Evrópumeistaratitil í unglingaflokki í hópfimleikum. Glæsileg afrek árið 2016 og við tökum fagnandi á móti 2017 til hamingju öll sem eitt.

You may also like...