Evrópumótið í Leipzig
Evrópumótið í áhaldafimleikum fór fram í Leipzig í Þýskalandi í lok maí. Gerpla átti þar 6 keppendur í karla- og kvennaflokki. Keppt var í liðakeppni, fjölþraut og úrslitum á áhöldum á mótinu. Einnig var nýjung í ár þar sem var keppt í blandaðri liðakeppni þar sem stigahæsti karlinn og stigahæsta konan mynuðu lið og kepptu í mixed team final. Skemmtileg nýjung sem verið er að prófa fyrir Ólympíuleikana sem haldnir verða í LA eftir 3 ár. Það voru topp 16 pörin sem komust inn í keppnina og voru Hildur Maja og Ágúst Ingi hársbreidd frá því að komast í þá keppni.






Landslið Íslands var skipað eftirfaraandi keppendum frá Gerplu.
Dagur Kári Ólafsson, Ágúst Ingi Davíðsson, Atli Snær Valgeirsson og Valgarð Reinhardsson.
Hildur Maja Guðmundsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir.


Stúlkurnar hófu keppni, en vegna meiðsla gat Thelma eingöngu keppt á tvíslá. Hún átti frábærar æfingar þar. Hildur Maja keppti í fjölþraut eftir að hafa verið meidd stóran hluta af keppnistímabilinu og átti hún gott mót. Gaman að sjá að hún sé að ná sér af meiðslunum.
Drengirnir kepptu svo degi á eftir stelpunum. Ágúst Ingi, Dagur Kári og Atli Snær áttu fínt mót. Ágúst hefur ekki náð að keppa mikið í vetur þar sem hann varð fyrir því óláni að meiðast illa á hendi í haust og er að ná sér upp úr þeim meiðslum. Valgarð var búinn að vera að glíma við meiðsli og veikindi í aðdraganda mótsins og náði sér ekki á strik í þetta skiptið.
Evrópumótið fer í dýrmætan reynslubanka hjá okkar fólki, nú tekur við hjá flestum kærkomið tímabil til að byggja sig upp fyrir næsta tímabil nema Hildur Maja ætlar að skella sér á eitt mót til viðbótar sem er í lok júní í Uzbekistan og tekur þátt á Heimsbikarmóti í Taskhent.
Til hamingju allir með glæsilegan fimleikavetur, við höldum ótrauð áfram að bæta við okkur og hlökkum til komandi tíma