Vormót yngri

Á vormótinu áttum við tvö lið í 5.flokki kvk. Bæði liðin stóðu sig mjög vel og fengu viðurkenningu fyrir sitt besta áhald á mótinu. Liðin sýndu bæði flottar æfingar og var gaman að sjá að gunnfærni þeirra er orðin mjög góð sem er góður grunnur til að byggja ofan á með flóknari og meira krefjandi æfingum strax í sumar og áfram næsta haust.

Gerpla sendi fimm lið til leiks í 4. flokki

4. fl 5 keppti í stökkfimi og endaði liðið í 3. sæti af 21 liði á mótinu. Stelpurnar stóðu sig sérstaklega vel í dansinum.

4.fl 4 keppi í C deild Hópfimleikum. Liðið endaði í 6. sæti á mótinu, þær stóðu sig frábærlega á dýnunni og fengu hæstu einkunn í deildinni á því áhaldi.

4. fl 3 keppti í B deild í hópfimleikum. Liðið endaði í 8. sæti á mótinu, Þær stóðu sig best á trampólíni

4. fl 1 og 2 kepptu svo bæði í A deild. Lið 2 endaði í 7. sæti og voru þær frábærar á dýnunni og fengu mjög góða einkunn þar. Lið eitt gerði sér svo lítið fyrir og unnu A deildina með miklum yfirburðum, þær voru í fyrsta sæti á dýnu og trampólíni en í öðru sæti í dansinum.

Virkilega gaman að fylgjast með fjórða flokknum í vetur. Miklar framfarir og mikil gleði.

You may also like...