Thelma Aðalsteinsdóttir og Ágúst Ingi Davíðsson Íslandsmeistarar
Yfirburðir Gerplufólks á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum 2026

Íslandsmótið í áhaldafimleikum fór fram um helgina í íþróttahúsi Ármanns í Laugardalnum. Á laugardeginum var keppt um fjölþrautatitla bæði í unglingaflokki og fullorðinsflokki hjá báðum kynjum. Þrír fjölþrautatitlar í hús hjá okkar iðkendum í Gerplu. Á sunnudag var síðan keppt til úrslita á áhöldum þar sem fimm stigahæstu keppendur í öllum flokkum unnu sér inn keppnisrétt.
Kvennaflokkur
Það var virkilega hörð keppni hjá konunum um efstu sætin og réðust ekki úrslitin fyrr en á síðasta áhaldinu. Thelma Aðalsteinsdóttir stóð uppi sem sigurvegari fimmta árið í röð en segja má að hún hafi tryggt gullið með frábærum æfingum á gólfinu, Lilja Katrín Gunnarsdóttir nældi sér í silfurverðlaunin og Kristjana Ósk Ólafsdóttir bronsverðlaun eftir frábæran dag og er skemmtilegt að segja frá því að þetta er nákvæmlega eins verðlaunapallur og í fyrra. Agnes Suto aldursforseti mótsins átti einnig virkilega flott mót og gaf ungu stúlkunum ekkert eftir og varð í fjórða sæti. Rakel Sara Pétursdóttir keppti á sínu fyrsta ári í fullorðinsflokki og varð í fimmta sæti. Gerpla átti því allar stúlkurnar í efstu fimm sætunum á mótinu. Thelma, Agnes, Lilja Katrín, Kristjana Ósk og Rakel Sara unnu sér inn keppnisrétt í úrslit á áhöldum.
Karlaflokkur
Spennan í karlaflokki var gríðarleg og keppnin mjög jöfn allan tímann og réðst ekki fyrr en í síðustu umferðinni. Ágúst Ingi Davíðsson og Dagur Kári Ólafsson voru búnir að skiptast á að leiða keppnina þar til í næst síðustu umferðinni. Ágúst Ingi Davíðsson stóð uppi sem sigurvegari í fyrsta sinn á ferlinum. Dagur Kári varð fyrir því óláni á næst síðasta áhaldinu að lenda illa á öxlinni og gat því ekki klárað æfingar á svifrá vegna meiðsla. Martin Bjarni Guðmundsson nældi sér svo í silfurverðlaun sem var virkilega ánægjulegt eftir tvö ár frá keppni vegna meiðsla í baki. Í þriðja sæti varð svo Íslandsmeistarinn frá því í fyrra Atli Snær Valgeirsson. Sigurður Ari Stefánsson varð svo í fimmta sæti eftir frábært mót. Ágúst, Dagur, Martin, Jónas Ingi, Atli Snær, Sigurður Ari og Valgarð unnu sér inn keppnisrétt í úrslit á áhöldum.

Unglingaflokkur stúlkna
Gerpla átti tvær stúlkur í keppni í unglingaflokki þær Elfu Maríu Reynisdóttur og Margréti Dóru Ragnarsdóttur. Keppnin var hörð og varð Elfa María í þriðja sæti í fjölþraut og Margrét Dóra í því fimmta. Elfa María og Margrét Dóra unnu sér báðar inn keppnisrétt í úrslitum á áhöldum.
Unglingaflokkur drengja
Virkilega skemmtileg keppni hjá drengjunum í fjölþraut þar sem okkar drengur Kári Pálmason varð Íslandsmeistari unglinga með yfirburðum annað árið í röð. Í öðru sæti varð Þorsteinn Orri Ólafsson úr Ármanni og í því þriðja Gerpludrengurinn Kári Hjaltason. Eysteinn Daði Hjaltason varð síðan í fjórða sæti. Arnór Snær Hauksson varð svo í sjötta sæti og Davíð Þór Bjarnason í því sjöunda. Yngsti keppandi mótsins var svo hinn efnilegi Ragnar Örn Ingimarsson sem átti frábært mót en náði sér ekki alveg á strik á laugardeginum. Ragnar Örn er fæddur árið 2013 og er því ekki enn kominn unglingaflokk. Hann er keppandi í drengjaflokki. Kári Pálma, Davíð Þór, Kári Hjalta, Arnór Snær, Eysteinn og Ragnar Örn unnu sér inn keppnisrétt í úrslitum á áhöldum.

17 Íslandsmeistaratitlar til Gerplu á einstökum áhöldum, 14 silfurverðlaun og 10 bronsverðlaun
Keppni í úrslitum á áhöldum fór fram á sunnudag. Virkilega spennandi keppni og voru Gerpluiðkendur í miklu stuði og rökuðu inn verðlaunum.
Karlaflokkur
Ágúst Ingi Davíðsson var Íslandsmeistari í gólfæfingum, Martin Bjarni Guðmundsson varð í öðru sæti og Jónas Ingi Þórisson í því þriðja.
Dagur Kári Ólafsson Íslandsmeistari á bogahesti, Sigurður Ari Stefánsson í öðru sæti og Ágúst Ingi Davíðsson í því þriðja
Ágúst Ingi Davíðsson Íslandsmeistari í hringjum, Jón Sigurður Gunnarsson úr Ármanni í öðru sæti og Martin Bjarni Guðmundsson í því þriðja
Sigurður Ari Stefánsson og Ágúst Ingi Davíðsson urður Íslandsmeistarar á stökki, Atli Snær Valgeirsson í þriðja sæti.
Ágúst Ingi Davíðsson Íslandsmeistari á tvíslá, Atli Snær Valgeirsson í öðru sæti og í þriðja sæti Lúkas Ari Ragnarsson.
Ágúst Ingi Davíðsson Íslandsmeistari á svifrá, Atli Snær Valgeirsson í öðru sæti og í þriðja sæti Lúkas Ari Ragnarsson.
Kvennaflokkur
Auður Anna Þorbjarnardóttir úr Stjörnunni Íslandsmeistari á stökki, Rakel Sara Pétursdóttir í öðru sæti og Sigurrós Ásta Þórisdóttir í þriðja.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir Íslandsmeistari á tvíslá, Thelma Aðalsteinsdóttir í öðru sæti og Agnes Suto í þriðja sæti
Thelma Aðalsteinsdóttir Íslandsmeistari á slá, Lilja Katrín Gunnarsdóttir í öðru sæti og Rakel Sara Pétursdóttir í þriðja sæti.
Thelma Aðalsteinsdóttir Íslandsmeistari á gólfi, Lilja Katrín Gunnarsdóttir í öðru sæti og Sigurrós Ásta Þórisdóttir Stjörnunni í því þriðja.


Unglingaflokkur drengja
Kári Pálmason Íslandsmeistari á gólfi,Þorsteinn Orri Ólafsson úr Ármanni varð í öðru sæti og Davíð Þór Bjarnason í því þriðja.
Kári Pálmason Íslandsmeistari á bogahesti, Kári Hjaltason varð í öðru sæti og Aron Freyr Davíðsson úr Björk í því þriðja.
Kári Hjaltason Íslandsmeistari í hringjum, Kári Pálmason varð í öðru sæti og Erik Þór Bjarnason Ármanni í því þriðja.
Þorsteinn Orri Ólafsson Íslandsmeistari á stökki, Davíð Þór Bjarnason í öðru sæti og Arnór Snær Hauksson varð í þriðja sæti
Kári Pálmason Íslandsmeistari á tvíslá, Kári Hjaltason varð í öðru sæti og Þorsteinn Orri Ólafsson í því þriðja.
Sólon Sverrisson Íslandsmeistari á svifrá,Rökkvi Kárason varð í öðru sæti og Kári Pálmason varð í þriðja sæti
Unglingaflokkur stúlkna
Elfa María Reynisdóttir Íslandsmeistari á stökki, Magdalena Andradóttir úr Ármanni í öðru sæti og Margrét Dóra Ragnarsdóttir í því þriðja.
Arney Ívarsdóttir Íslandsmeistari á tvíslá, Magdalena Andradóttir Ármanni í öðru sæti og Valdís Júlía Daníelsdóttir úr Ármanni í því þriðja.
Elfa María Reynisdóttir Íslandsmeistari á slá, Eydís Eva Hermannsdóttir úr Stjörnunni í öðru sæti og Arney Ívarsdóttir í því þriðja
Elfa María Reynisdóttir Íslandsmeistari á gólfi, Arney Ívarsdóttir í öðru sæti og Magdalena Andradóttir í því þriðja.


Íslandsmótið í þrepum fimleikastigans
3. þrep stúlkna
Gerpla átti fjóra keppendur í 3. Þrepi stúlkna þær Diljá Björt Axelsdóttur, Amalíu Ívarsdóttur, Berglindi Helgu Hauksdóttur og Valgerði Svönu Halldórsdóttur. Diljá Björt varð í þriðja sæti í 11 ára og yngri. Amalía varð í fjórða sæti, Valgerður í því sjötta og Berglind Helga í því sjöunda í flokki 13 ára og eldri.
3. þrep drengja
Gerpla átti sex keppendur í 3. Þrepi. Skipt var í tvo aldursflokka, í 12 ára og yngri kepptu allir okkar drengir þeir Arnar Bjarki Unnarsson, Maggi Þór Halldórsson, Einar Hrafn Sigurðsson, Arna Logi Sigurðsson, Hjálmar Bjarni Kristmannsson og Alexander Hugo Baldursson. Arnar Bjarki varð hlutskarpastur og varð Íslandsmeistari í 3. Þrepi 12 ára og yngri og jafnframt stigahæstur yfir báða aldursflokka og því Íslandsmeistari í 3. Þrepi drengja. Maggi Þór Halldórsson varð í örðu sæti og Einar Hrafn Sigurðsson í því þriðja.
2. þrep stúlkna
Gerpla átti tvo keppendur í 2. Þrepi stúlkna, þær Tönju Mist Þorgeirsdóttur og Ingibjörgu Leu Plédel Eymarsdóttur. Skipt var í tvo aldursflokka og kepptu þær í sitthvorum aldursflokknum. Tanja Mist varð í fjórða sæti í flokki 12 ára og yngri og Ingibjörg Lea varð í sjöunda sæti í flokki 13 ára og eldri.
2. þrep drengja
Gerpla átti þrjá keppendur í 2. Þrepi drengja. Ísak Þór Ívarsson, Hrannar Már Másson og Róbert Smári Vilhelmsson. Ísak Þór varð í þriðja sæti, Hrannar í því fjórða og Róbert Smári í fimmta sæti.

1. þrep drengja
Gerpla átti þrjá keppendur í 1. Þrepi. Tómas Andri varð Íslandsmeistari í 1. Þrepi 14 ára og yngri og Kári Arnarson í öðru sæti. Tadas Eidukonis varð Íslandsmeistari í 1. Þrepi 15 ára og eldri. Tómas Andri varð jafnframt stigahæstur yfir báða flokka og því Íslandsmeistari í 1. þrepi
1. þrep stúlkna
Gerpla átti þrjá keppendur í 1. Þrepi stúlkna. Skipt var í tvo aldursflokka, í 14 ára og eldri keppti Saga Ólafsdóttir og varð hún í öðru sæti. Í flokki 13 ára og yngri varð Ísabella Benonýsdóttir Íslandsmeistari og Berglind Sara Erlingsdóttir í öðru sæti.
Virkilega glæsileg uppskera hjá öllum keppendum okkar og óskum við iðkendum okkar, þjálfurum og aðstandendum innilega til hamingju með frábæran árangur. það verður svo gaman að fylgjast með okkar fólki í næstu verkefnum sem eru framundan. Sumir hafa lokið keppni í vetur og hefja undirbúning fyrir næsta keppnistímabil, aðrir undirbúa sig fyrir Vormót í áhaldafimleikum sem haldið verður eftir þrjár vikur á meðan landsliðsfólkið okkar stefnir á Heimsbikarmót, Evrópumót, og Norðurlandamót fullorðinna og unglinga sem fer fram á næstu mánuðum. Gangi ykkur öllum vel í þeim undirbúningi sem framundan er, við erum virkilega stolt af ykkur.
Myndir: https://gerpla.smugmug.com/2026/Islandsmhaldafimleikum

