Íslandsmót í hópfimleikum og stökkfimi

Síðast liðna helgi fór fram íslandsmót í hópfimleikum og stökkfimi upp á Akranesi. Gerpla sendi inn lið í átta mismundi flokkum og má með sanni segja að árangurinn hafi verið framúrskarandi.

Í fjórum af þessum 8 flokkum urðu lið frá Gerplu Íslandsmeistarar og í hinum fjórum flokkunum sem Gerpla sendi lið til keppni urðu liðin í 2. sæti

Þess má líka geta að tvö af þessum fjórum liðum sem urði í 2. sæti á þessu Íslandsmóti urðu Bikarmeistarar í mars. Þannig að af átta flokkum sem Gerpla sendir lið í á Íslandsmóti og Bikarmóti urðu 6 lið Íslands- eða Bikarmeistarar sem er magnaður árangur.

Fimmtudagur – 3. flokkur B deild, 2. flokkur og KKE 

Mótið hófst á fimmtudegi og 3.fl B deild var fyrsti hluti mótsins. Þar mættu stelpurnar flottar til leiks og enduðu í 2.sæti 0.4 stigum frá fyrsta sætinu. Liðið var með hæstu einkunn á trampólíni en smá mistök á dýnunni urðu til þess að liðið hafnaði í 2.sæti á þessu móti. Stelpurnar höfðu gaman að mótinu og voru mjög duglegar að hvetja hvor aðra áfram.

2. flokkur varð Bikarmeistari í mars og stefndu því á að verða Íslandsmeistarar líka. Þær gerðu sér lítið fyrir og fengu hæstu einkunn í dansi og á dýnunni en liðið lenti svo í smá meiðslum á mótinu sem gerði þeim erfitt fyrir á trampólíninu og þrátt fyrir að hafa fengið næst hæstu einkunn þar þá dugði það ekki til í þetta skipti og niðurstaðan var 2. sætið. Stelpurnar stóð sig mjög vel og stóðu þétt saman þegar upp komu meiðsli og það þurfti að redda hlutunum fyrir trampólínið.

KKE mættu hrikalega flottir til leiks og unnu öll áhöldin í sínum hluta á mótinu. Þeir unnu svo samtals með tæplega 4 heilum og eru því verðskuldaðir Íslandsmeistarar í þeim flokki. Strákarnir hafa æft vel og tekið stöðugum framförum í allan vetur. Það verður gaman að fylgjast með þeim á næsta tímabili.

Föstudagur – 1. flokkur 

Á föstudeginum var svo einn hluti en það var 1.flokkur sem keppti í þeim hluta. Gerpla átti tvö lið þar, 1.fl kvk og 1.fl mix.

Hvorugt þessara liða urðu Bikarmeistarar í mars og mættu því extra peppuð í daginn og ákveðin að gera sitt allra besta. 1.fl kvk byrjaði á dýnu og gerðu þær nokkur mistök og fengu því ekki eins háa einkunn og þær voru að vonast eftir þar. Næsta áhald var trampólín og voru stelpurnar staðráðnar í að lenda öll stökkin sín þar sem þær gerðu og fengu hæstu einkunn allra liða á því áhaldi. Þá var komið að dansinum og allt undir og mikil spenna. Liðið gerði frábæran dans og fengu þær einnig hæstu einkunn þar. Þessi frábæra frammistaða á trampólíninu og dansinum gerði það að verkum að þær urðu Íslandsmeistarar með meira en heilu stigi frá næsta liði.

1.flokkur mix byrjaði einnig á dýnu, þau lentu öll sín stökk og fengu frábæra einkunn. Næst var það trampólínið þar sem þau lentu líka öll sín stökk fyrir utan ein smávægileg mistök og fengu hæstu einkunn þar líka. Þá var komið að dansinum og þurftu krakkarnir að mæta tilbúin inn á gólfið til að sigla titlinum heim í Kópavoginn. Það gekk heldur betur eftir og fengu þau líka hæstu einkunn allra liða í dansinum. Þau stóðu því uppi sem sigurvegarar á öllum áhöldum.

Frábær dagur hjá fyrstu flokkunum okkar og tveir verskuldaðir Íslandsmeistaratitlar.

Laugardagur – 3. flokkur stökkfimi og 3. flokkur A deild 

Á laugardeginum mættu svo stelpurnar í 3. flokki stökkfimi strax um morguninn. Gerpla átti tvö lið í þeim flokki og áttu liðin bæði flottan dag og enduðu í 2.sæti og 5.sæti af ellefu liðum sem mætt voru til keppni. Liðin hafa verið í stöðugri framför og var gaman að sjá þær uppskera vel eftir veturinn.

Um hádegi var svo komið að 3.fl A deild og mættu stelpurnar í 3.fl 1 klárar í að eiga góðan dag.

Til að gera langa sögu stutta þá stóðu stelpurnar sig frábærlega.  Þær byrjðu á trampólíni og lentu öll stökkin sín og fengu því lendingarbónus frá dómurunum. Næst var það dansinn og heppnaðist hann mjög vel. Þær enduðu svo á dýnunni og gerðu sér lítið fyrir og lentu öll stökkin sín þar líka og fengu aftur lendingarbónus eins og á trampólíni.Lendingarbónus telur 0,2 ofan á lokaeinkunn áhalds.

Sunnudagur – Meistaraflokkur

Á sunnudeginum mætti svo Meistaraflokkurinn okkar til leiks. Liðið okkar varð Bikarmeistari í mars og voru stelpurnar tilbúnar í daginn til að leggja allt í sölurnar til að landa þeim stóra í fyrsta skipti síðan 2017. Liðið byrjaði á dýnunni og gekk það frábærlega þó að ein mistök hafi komið í seinasta stökkinu.

Næst var það trampólínið og vissu stelpurnar að þær þyrftu að eiga frábært trampólín til að eiga möguleika á að ná markmiðum sínum. Liðið var frábært og lentu þær öll 18 stökkin og fengu hæstu einkunn allra liða á trampólíni á mótinu. Svo var komið að dansinum en smá hnökrar í honum urðu til þess að einkunnin þar var aðeins lægri en væntingar stóðu til. Niðurstaðan var 2.sæti á eftir mjög flottu liði frá Stjörnunni.

Ótrúlega flott helgi að baki hjá okkar fólki, nú er keppnistímabilinu lokið í Hópfimleikunum og allir komnir á fullt í að breyta og bæta til að komast ennþá lengra. Tímabilið í heild var mjög flott með mörgum flottum hápunktum, Við erum spennt að halda áfram að bæta okkur og að hafa gaman af því að vera í fimleikum.

You may also like...