fbpx

Sif ráðin landsliðsþjálfari unglinga

Sif Pálsdóttir hefur verið ráðin landsliðsþjálfari unglinga í áhaldafimleikum kvenna. Hún hefur mikla reynslu sem keppandi í áhaldafimleikum sjálf og hafa margir þjálfarar komið að hennar fimleikaþjálfun sem hefur verið mikill lærdómur og reynsla fyrir hana. Spennandi tímar framundan og skemmtileg verkefni fyrir unglinga. Norðurlandamót, Ólympíuhátíð æskunnar og Evrópumót eru verkefni sumarsins.

Sif og Ingibjörg

Einnig hafa Sif Pálsdóttir og Ingibjörg Þóra Þórarinsdóttir verið ráðnar sem teymisþjálfarar í hæfileikamótun stúlkna.

Til hamingju Sif og Ingibjörg, við óskum ykkur góðs gengis með nýju störfin!

You may also like...