fbpx

Opin æfing fyrir stráka!

Allir strákar sem hafa áhuga á að verða sterkir, hoppa á trampólíni og að læra ný trix eru velkomnir að koma og æfa með okkur að kostnaðarlausu.

Ef þú æfir fimleika nú þegar er þér líka boðið og þá getur þú tekið vini þína með og leyft þeim að prófa. Æfingar verða haldnar á mismunandi stöðum á landinu yfir árið og stendur öllum drengjum fæddum 2006-2012 til boða.

Skráning:

Næsta æfing verður haldin þann 12. júní, kl. 13:00-15:00 í fimleikahúsi Akraness. Fjöldatakmörkun er á æfinguna vegna Covid-19 og því nauðsynlegt að skrá þann sem mætir, áður en mætt er á æfinguna upp á smitrakningu.

Skráning á æfinguna fer fram hér.

Um verkefnið:

Fimleikasambandið hóf þetta verkefni á síðasta ári, en verkefnið er hluti af Hæfileikamótun sambandsins og sjá landsliðsþjálfararnir Magnús Óli Sigurðsson og Alexander Sigurðsson um framkvæmd þess í ár, þeim til aðstoðar er Eysteinn Máni Oddsson. Markmið verkefnisins er að auka þátttöku drengja í íþróttinni og var mikil ánægja var með æfingarnar í fyrra en að meðaltali mættu um 60 strákar á hverja æfingu, þar sem margir tóku sín fyrstu skref í fimleikum.

Samfélagsmiðlar:

Á instagram síðu Fimleikasambandsins: icelandic_gymnastics má finna myndbönd og myndir af karlalandsliðinu af æfingum frá því í fyrra ásamt myndum og myndböndum úr Fimleikahringnum 2020.  

Hér má sjá myndband af æfingu frá því í fyrra:  

Hér má sjá kynningarmyndband um verkefnið:

Við hlökkum til að sjá sem flesta!

You may also like...