Kári Pálmason Norðurlandameistari unglinga í áhaldafimleikum 

Norðurlandamótið í áhaldafimleikum fer fram núna um helgina í Álaborg í Danmörku. 

Í dag var keppt í unglingaflokki karla og kvenna þar sem lið Íslands varð í 4. sæti bæði  kvenna og karlaliðið. Einnig var keppt í fjölþraut þar sem Gerpludrengurinn Kári Pálmason gerði sér lítið fyrir og sigraði fjölþrautina með sínu allra besta skori í vetur 71.198 stigum. Keppnin var mjög hörð og réðust úrslitin á síðustu æfingum á svifrá í seinna keppnisholli í dag. Frábær árangur hjá Kára. Innilegar hamingjuóskir til Kára og þjálfarateymisins hans, þeirra Alek, Axels og Ali. 

Stúlkurnar áttu fínan  keppnisdag en sláin var aðeins að stríða okkur í dag og voru föllin dýrkeypt. Hæsta fjölþrautarskor í dag atti Rakel Sara Pétursdóttir 43.550 stig.

Í gær föstudag keppti drengjalið Íslands og voru allir liðsmenn að keppa í sínu fyrsta landsliðsverkefni. Þeir stóðu sig virkilega vel og voru landi og þjóð til sóma. 

Á morgun sunnudag eru keppendur okkar í úrslitum á einstökum áhöldum, það verður spennandi að fylgjast með þeim þar.

Landslið Íslands var skipað eftirfarandi Gerplukeppendum

Unglingar karla
Kári Pálmason og Eysteinn Daði Hjaltason

Unglingar kvenna
Ísabella Maack Róbertsdóttir og Rakel Sara Pétursdóttir

Drengjalið
Ármann Andrason, Ísak Þór Ívarsson og Tómas Andri Þorgeirsson

You may also like...