Hópfimleikamót yngri

Um helgina fór fram hópfimleikamót fyrir 4. flokk og kky sem haldið var í Ármanni. Gerpla átti þrjú lið í 4. flokk.

Mótið er þannig uppsett að eftir haustmótið þá voru gefin út stigaviðmið frá Fimleikasambandinu. Öll lið sem fengu meira en 37 stig fengu gull verðlaun, öll lið sem fengu frá 30-37 stig fengu silfurverðlaun og liðin sem fengu undir 30 stig fengu bronsverðlaun á mótinu.

4.fl þrjú keppti í fyrsta hluta mótsins. Stelpurnar stóðu sig rosalega vel en mesta bætingin hjá þeim frá síðasta móti var í dansinum þar sem þær stóðu sig mjög vel. Á dýnu fengu þær 9.1 í framkvæmdareinkunn sem er mjög flott. Liðið endaði með 37.250 í samanlögð stig á mótinu og uppskáru því gullverðlaun.

4. fl eitt og tvö kepptu í öðrum hluta mótsins.  

4. fl tvö bætti sig eins og lið þrjú mest í dansinum frá því á mótinu í Nóvember. En heilt yfir stóðu þær sig mjög vel á öllum þrem áhöldunum. 4. flokkur tvö endaði á að skora 39.150 stig og fengu gullverðlaun fyrir sína frammistöðu.

4. fl eitt bætti sig mest á trampolíni frá því á mótinu í Nóvember. Þær stóðu sig einnig mjög vel í dansinum og dýnunni og enduðu á að fá 42.300 sig á mótinu og uppskáru einnig gullverðlaun eins og hin Gerpluliðin í fjórða flokki. Allur fjórði flokkurinn okkar að gera góða hluti.

Strákarnir í KKy kepptu svo á sunnudeginum . Hjá strákunum eru stigaviðmiðin aðeins önnur en hjá 4.flokki þau lið sem fá meira en 35 stig fá gullverðlaun, þeir sem fá 28-35 stig fá silfurverðlaun og þeir sem fá lægra en 28 stig fá bronsverðlaun.

Þeir stóðu sig heldur betur vel og bættu sig á öllum áhöldum frá haustmótinu. Mest bættu þeir sig í dansinum eða um tæplega þrjá heila , þeir bættu sig einnig mikið á trampolíninu eða um tvo heila.

Þetta varð til þess að frá mótinu í Nóvember bættu strákarnir sig um tæp fim heil stig í einkunn sem er frábær bæting. Þeir fengu á þessu móti 36.425 stig og fengu því gullverðlaun eftir mótið.

Frábær helgi hjá okkar fólki sem verður gaman að fylgjast með á næstu mótum.

You may also like...