Vormót í áhaldafimleikum
Vormót í áhaldafimleikum (áður GK meistaramót) fór fram síðastliðin fimmtudag á tveim stöðum. Mótið var að þessu sinni haldið í Ármanni (drengir) og í Stjörnunni (stúlkur). Strákarnir kepptu í einum hluta og stúlkurnar í tveim. Keppt var fyrr um morguninn í fullorðinsflokki kvenna og svo eftir hádegi í unglingaflokki og stúlknaflokki.
Gerpla átti 6 keppendur í karlaflokki og 5 keppendur í kvennaflokki. Ágúst Ingi Davíðsson sigraði karlaflokkinn ásamt því að fá verðlaun á gólfi, hringjum, stökki, tvíslá og svifrá. Sigurður Ari Stefánsson varð í öðru sæti í fjölþraut og fékk verðlaun á hringjum, stökki, tvíslá og svifrá. Atli Snær Valgeirsson varð í þriðja sæti í fjölþraut og fékk verðlaun á gólfi, hringjum, stökki og svifrá. Jónas Ingi Þórisson fékk verðlaun á gólfi. Atli Elvarsson fékk verðlaun á bogahesti. Dagur Kári Ólafsson sigraði æfingar á bogahesti og tvíslá.
Lilja Katrín Gunnarsdóttir sigraði kvennaflokkinn og fékk verðlaun á tvíslá, slá og gólfi. Kristjana Ósk Ólafsdóttir fékk silfurverðlaun í fjölþraut ásamt því að fá verðlaun á slá og gólfi. Rakel Sara Pétursdóttir varð í þriðja sæti í fjölþraut og fékk verðlaun á stökki. Sólný Inga Hilmarsdóttir fékk verðlaun á slá.
Gerpla átti 6 keppendur í unglingaflokki karla, 2 keppendur í unglingaflokki kvenna, 4 keppendur í drengjaflokki og 3 keppendur í stúlknaflokki. Kári Hjaltason var í öðru sæti í fjölþraut ásamt því að fá verðlaun á bogahesti, hringjum og tvíslá. Arnór Snær Hauksson varð í þriðja sæti í fjölþraut og fékk verðlaun á stökki. Arnór Snær Hauksson varð í þriðja sæti í fjölþraut og gullverðlaun á stökki. Eysteinn Daði Hjaltason sigraði æfingar á gólfi og fékk verðlaun á hringjum, tvíslá og svifrá. Davíð Þór Bjarnason sigraði æfingar á svifrá og fékk verðlaun á gólfi, stökki og tvíslá.
Ragnar Örn Ingimarsson sigraði fjölþraut í drengjaflokki ásamt því að fá verðlaun á gólfi, bogahesti, hringjum, stökki og svifrá. Tómas Andri Þorgeirsson varð í öðru sæti í fjölþraut ásamt því að fá verðlaun á bogahesti, tvíslá og svifrá. Ísak Þór Ívarsson varð í þriðja sæti í fjölþraut og fékk verðlaun á gólfi, hringjum og svifrá. Kári Arnaron sigraði æfingar á tvíslá ogfékk verðlaun á gólfi og bogahesti.
Elfa María Reynisdóttir fékk silfurverðlaun í unglingaflokki kvenna og sigraði æfingar á slá ásamt því að fá verðlaun á tvíslá og gólfi. Ísabella Benonýsdóttir sigraði æfingar á stökki í stúlknaflokki og Berglind Sara Erlingsdóttir sigraði æfingar á jafnvægisslá.
Til hamingju með glæsilegan árangur og flott keppnstímabil!



Fleiri myndir https://gerpla.smugmug.com/2026/Vormt-haldafimleikum


