Vel heppnaður lokatími hjá kríla- og bangsahópum

Þann 17. maí fór fram síðasti tími annarinnar hjá bangsa- og krílahópum í Gerplu

Börnin fengu að spreyta sig á fjölbreyttum stöðvum sem settar voru upp í salnum og skemmtu sér konunglega. Þá fengu þau einnig skemmtilega heimsókn frá Sóloni og Dimmu sem vakti mikla lukku meðal barnanna. Þau voru bæði hissa og glöð að fá þau í heimsókn, stilltu sér fallega upp í myndatöku og gengu svo út afar ánægð eftir vel heppnaðan leik og samverustund. Með þessu er formlegu starfi þesara hópa lokið vetur og hlökkum við til að taka á móti þeim næsta haust hér í Gerplu.

You may also like...