Gleði, gaman og glæsileiki á Garpamóti Gerplu
Dagana 22. og 23. apríl fór fram Garpamót Gerplu. Mótið er fastur liður í dagskránni hjá okkur og er haldið bæði á haustin og vorin. Seinni mótsdagurinn var Sumardagurinn fyrsti sem gerði stemninguna enn skemmtilegri.
Á mótinu komu fram iðkendur á aldrinum 5–8 ára úr grunn- og framhaldshópum félagsins. Fyrir mörg þeirra var þetta fyrsta skiptið að koma fram, og það var gaman að sjá hvað þau voru spennt og dugleg. Þau sýndu æfingar sem þau höfðu undirbúið á önninni, og það var greinilegt að þau höfðu lagt mikla vinnu í þær.
Mótinu var skipt upp í sex hluta og alls tóku yfir 500 iðkendur þátt þessa tvo daga. Vel var mætt í stúkuna þar sem áhorfendur studdu krakkana af krafti og klöppuðu fyrir þeim.
Krakkarnir stóðu sig ótrúlega vel, lögðu sig fram og létu ljós sitt skína. Eftir mótið fengu allir gullpening og viðurkenningarskjal, sem var vel verðskuldað.
Það var virkilega gaman að fylgjast með þessum flottu framtíðarstjörnum.
Næsti viðburður hjá þeim er svo Vorsýning Gerplu dagana 29. og 30. maí. Hún er alltaf einn af stærstu og skemmtilegustu viðburðum ársins og skemmtilegur endapunktur áður en sumarnámskeiðin og svo sumarfríið tekur við.





































