fbpx

HM í Antwerpen

Vikuna 30. september til 8. október fer fram heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum í Belgísku borginni Antwerpen. Gerpla átti þrjá keppendur á mótinu af fjórum, Dagur Kári Ólafsson, Valgarð Reinhardsson og Thelma Aðalsteinsdóttir.

Valgarð steig fyrstur út á keppnisgólfið af Íslensku keppendunum á laugardaginn. Eftir frábæra byrjun á fyrstu þrem áhöldunum var ólympíudraumurinn í augsýn en á áhaldi fjögur náði Valgarð ekki að grípa flugæfingu á svifránni og í svona harðri keppni eru það mjög dýr mistök. En Valgarð kláraði mótið af öryggi. Keppnin var mjög hörð um sætin í París næsta sumar og endaði það þannig að enn hefur enginn Norðurlandabúi tryggt sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum.

Dagur Kári fékk símtal á miðvikudaginn síðasta þar sem hann var fyrsti varamaður inn á mótið frá því á EM í vor. Biðin var löng en nýtti Dagur sumarið vel í undirbúning fyrir mótið. Dagur mætti til Belgíu á fimmtudaginn tilbúinn í sitt fyrsta heimsmeistaramót en í upphitun á sunnudaginn á mótsdegi tóku sig upp gömul axlarmeiðsli sem tóku hann út úr fjölþrautarkeppni á mótinu en náði hann að keppa á sínu besta áhaldi bogahesti með aðeins breyttri æfingu. Það er ekki á færi allra að breyta keppnisrútínunni sinni með svo stuttum fyrirvara en það gerði Dagur með glæsibrag og uppskar flotta einkunn. Þetta ferli verður án efa góð reynsla í veganesti næstu ára en Dagur er mjög ungur og efnilegur fimleikamaður sem á eftir að fara á nokkur heimsmeistaramót.

Thelma (mynd: FSÍ)

Thelma var síðust út á keppnisgólfið af okkar keppendum í síðasta keppnishluta í undankeppninni á mánudagskvöld. Thelma mætti einbeitt til leiks og átti vægast sagt frábært mót. Thelma náði sínum allra besta árangri á alþjóðlegu móti í þessum ólympíuhring á mótinu. Dómarar voru mjög strangir og keppnin gífurlega sterk. Hún var eingöngu 0.866 stigum frá sæti inn á Ólympíuleikana í París. Grátlega nálægt en eftir virkilega glæsilegt mót og framúrskarandi frammistöðu er ekki hægt annað en að vera stoltur af árangrinum og bera höfuðið hátt. Líkt og hjá körlunum hefur enginn Norðurlandabúi enn tryggt sér sæti á Ólympíuleikunum í París 2024.

Möguleikinn hjá okkar fólki er enn til staðar þrátt fyrir að HM sé búið og verður reynt til þrautar. Við erum virkilega stolt af okkar keppendum og óskum þeim, fjölskyldum þeirra og ekki síst flottu þjálfurunum okkar innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!

You may also like...