Gerpla með silfur á Norðurlandamóti unglinga

Um síðustu helgi fór fram Norðurlandamót unglinga í Sola í Noregi.

Gerpla sendi tvö lið til keppni, 1. flokk kvenna og 1. flokk mix, en bæði lið tryggðu sér þátttökurétt á mótið með árangri sínum á haustmóti í nóvember á síðasta ári.

1. flokkur mix hóf keppni á laugardagsmorgni. Fyrsta áhald var dans, sem gekk ágætlega en með smávægilegum hnökrum. Næst var dýna þar sem fyrsta umferð gekk mjög vel og öll stökk lent. Önnur umferð var flott en með einu falli, og í þriðju umferð urðu smá mistök sem kostuðu stig.

    Síðasta áhaldið var trampólín, þar sem hópurinn átti sína bestu frammistöðu og fékk sína hæstu framkvæmdareinkunn. 1. flokkur mix endaði í 6. sæti á mótinu. Fyrir flesta var þetta fyrsta stórmótið og því fer dýrmæt reynsla beint í reynslubankann. Mikill lærdómur fylgir því að fara í gegnum svona ferli sem svona móta undirbúningur er og búa keppendur yfir því til framtíðar. Liðið skemmti sér vel í ferðinni og var Gerplu til mikils sóma hvar sem það kom.

    1. flokkur kvenna keppti í næsta hluta mótsins, en alls voru tíu lið skráð til leiks. Liðið byrjaði á dýnu og áttu stelpurnar frábæra frammistöðu, með örfáa litla hnökra og eina móttöku. Næst var dansinn, þar voru þær glæsilegar en gerðu smá mistök hér og þar og enduðu með þriðju hæstu einkunn á mótinu fyrir gólfæfingar. Síðasta áhaldið var trampólín, þar sem liðið mætti með hæstu erfiðleikaeinkunn mótsins. Stelpurnar voru glæsilegar og lentu 16 af 18 stökkum með frábærri framkvæmd. Eitt stökk missti þó gildi í liðsæfingu sem hafði áhrif á heildareinkunn, en þrátt fyrir það héldu þær efstu erfiðleikaeinkunn mótsins á þessu áhaldi.

        Eftir fyrri hluta keppninnar var Gerpla í 1. sæti með tveggja stiga forskot á næsta lið. Spennan var því mikil þegar liðin í seinni hlutanum kláruðu keppni. Þegar aðeins eitt lið átti eftir að fá sínar einkunnir var Gerpla enn á toppnum, en GK Splitt frá Svíþjóð náði að skjótast upp fyrir með frábærum degi. Niðurstaðan varð því silfurverðlaun, eins og á mótinu fyrir tveimur árum. Það var ekki nema 0,5 stig sem skildu liðin að sem er svo lítill munur á heilu móti.

        Stelpurnar stóðu sig ótrúlega vel og voru hársbreidd frá titlinum. Vonbrigðin voru skiljanleg, enda var ljóst að vinna þeirra og metnaður skiluðu frábærri heildarframmistöðu. Hópurinn stóð þó þétt saman, hristi svekkelsið fljótt af sér og átti skemmtilegt kvöld með hinum liðunum. Þær voru Gerplu sem og landi og þjóð til mikils sóma.

        Við erum afar stolt af þessum flottu hópum og þjálfurum þeirra. Þetta eru iðkendur sem eru komnir mjög langt í sínum fimleikum miðað við aldur og greinilega tilbúnir í næstu verkefni. Þjálfararnir stóðu þétt við bakið á þeim allan tímann og með góðri vinnu og gleði náðist þessi frábæri árangur.

        Áfram Gerpla!

        You may also like...