Sterk frammistaða Gerplu á Hópfimleikamóti eldri og Mótaröð 2
Síðustu helgina í febrúar fór fram Hópfimleikamót eldri og Mótaröð 2 á Akranesi. Á mótinu er keppt með mýkri lendingu en venjulega og er mótið notað sem mikilvægt æfingamót fyrir Bikarmótið sem fram fer helgina 20.–22. mars.
Keppni hófst á föstudeginum þar sem 2. flokkur og KKE stigu á gólfið. Gerpla sendi tvö lið í 2. flokki sem bæði áttu gott mót. Lið 1 var í harðri baráttu um efstu þrjú sætin og stóð uppi sem sigurvegari að lokum, þar sem innan við 0,1 stig munaði á milli liðanna. Lið tvö fylgdi fast á eftir og endaði í 4. sæti.
KKE-liðið átti einnig flott mót og sigraði á gólfi með glæsilegar gólfæfingar. Þeir enduðu að lokum í 2. sæti samanlagt eftir sterka frammistöðu á öllum áhöldum.


Á laugardeginum keppti 3. flokkur í A- og B-deild. Gerpla sendi eitt lið í hvora deild og stóðu bæði lið sig afar vel. Lið eitt, sem keppti í A-deild, náði 2. sæti á öllum áhöldum og endaði í 2. sæti samanlagt. Lið tvö keppti í B-deild og tryggði sér einnig 2. sæti samanlagt, en liðið var efst í gólfæfingum.
Á sunnudeginum var keppt í stökkfimi í 3. flokki þar sem Gerpla sendi tvö lið til keppni. Lið eitt átti frábæran dag og sigraði stökkfimina af sannfæringu, efst af ellefu liðum. Lið tvö stóð sig einnig vel og endaði í 7. sæti á mótinu, auk þess að ná 3. sæti á trampólíni.




Sama dag fór einnig fram Mótaröð 2 þar sem 1. flokkur og meistaraflokkur mæta til leiks. Þar keppa öll lið á móti öllum og ríkir jafnan mikil spenna. Í Mótaröðinni fá liðin tækifæri til að nota allt að 15 iðkendur í hverri umferð á stökkáhöldum, sem gerir mótið sérstaklega líflegt og skemmtilegt. Venjan í þessum flokkum er að hafa sex iðkendur í hverri umferð, þannig að það var sannkölluð fimleikaveisla.
Gerpla sendi eitt lið í meistaraflokki og tvö lið í 1. flokki, kvennalið og blandað lið. Liðin í 1. flokki eru komin á mjög góðan stað í undirbúningi sínum fyrir Norðurlandamót unglinga sem fram fer í apríl. Meistaraflokkurinn er einnig á mikilli uppleið hvað erfiðleikastig varðar og nýtti mótið til að prófa fjölda nýrra stökka.
Kvennalið Gerplu í 1. flokki átti frábært mót og endaði í 1. sæti samanlagt. Keppnin var þó afar jöfn þar sem aðeins 0,02 stig skildu liðið frá meistaraflokksliðinu sem hafnaði í 2. sæti. Liðið sýndi sérstaklega sterkar gólfæfingar með öllum mómentum gildum sem skilaði þeim 1. sæti á gólfi, auk þess sem þær voru efstar á dýnu.
Blandað lið Gerplu í 1. flokki stóð sig einnig vel. Liðið er ungt og í uppbyggingu, en sýndi góða takta og mikilvægar framfarir sem lofar góðu fyrir komandi mót.



Myndir: https://gerpla.smugmug.com/2026/Hpfimleikamt-eldri-mtar-2
Úrslit
Hópfimleikamót eldri: https://live.sporteventsystems.se/Score/WebScore/3529?country=isl&year=-1
Mótaröð 2: https://live.sporteventsystems.se/Score/WebScore/3530?country=isl&year=-1

