fbpx

Parkour

 

Parkour er íþrótt sem snýst um góðan lífstíl og mikla hreyfingu. Hún á rætur sínar að rekja til Parísarborgar árið 1987 þegar hópur fimleikadrengja hóf að framkvæma æfingar á opnum leikvangi. Hana má stunda hvar sem er og er algengast að fólk stundi íþróttina í þéttbýli. Íþróttin telst ekki hættuleg þrátt fyrir að margar æfingarnar séu mjög áhættusamar. Þetta er eins og með allar aðrar íþróttir, það telst ekki hættulegt ef þú kannt til verka.

 

Árið 2009 hóf Gerpla að bjóða upp á Parkour þjálfun undir leiðsögn Sindra Viborg. Námskeiðin hafa verið mjög eftirsótt og hefur aðsókn aukist verulega samhliða auknum sýnileiki íþróttarinnar á undanförnum árum. Parkour námskeiðin byggjast á því að læra að sneiða fram hjá hindrunum með því að stökkva, klifra og rúlla, ásamt því að beita öðrum aðferðum. Snerpa skiptir sköpum við framkvæmd æfinganna og er ítarlega farið í öll tækniatriði í þeim tilgangi að yfirstíga allar hindranir. Í dag leggja um 200 manns stund á íþróttina hér á landi og fer þeim fjölgandi.

 

Íþróttafélagið Gerpla býður upp á æfingar í Parkour veturinn 2011-2012.

Æfingartímar fyrir Parkour;

Hægt er að að skrá sig á biðlista í Parkour Yngri (17 ára  og yngri) með því að senda okkur póst á gerpla (at)gerpla.is

Enn eru laus pláss í Parkour eldri (18 ára og eldri) . Sendið skráningu á gerpla(at)gerpla.is

Upplýsingar sem þurfa að fylgja skráningu eru;

Nafn og kennitala iðkanda:
Nafn og kennitala greiðanda:
Símanúmer
Netfang.

 

You may also like...