fbpx

Íþróttabíllinn – Ný tímaáætlun hefst á þriðjudaginn 18.september! UPPFÆRT!

Nýja tímaáætlunin sem átti að hefjast í dag þriðjudaginn 18.september hefur verið uppfærð eftir margar ábendingar til íþróttafélaganna og frístundaheimilanna um helgina. Eftir mikla yfirlegu og púsluspil verður byrjað að keyra eftir NÝJU plani í dag, þriðjudaginn 18.september. Planið tekur mið af skólalokum 1.-4.bekkjar í grunnskólum Kópavogs. Að sjálfsögðu er eldri nemendum frjálst að nýta bílinn passi taflan við þeirra frístundir og pláss er í bílunum.

Það er ljóst að aldrei næst að búa til hina fullkomnu aksturáætlun en það er trú okkar að þessi sem hér birtist komist eins nálægt því og hægt er. Íþróttafélögin og forstöðumenn frístundaheimila og skólasvið Kópavogsbæjar hafa unnið náið saman síðastliðinn sólarhring og var ákvörðun um að keyra þetta nýja plan í dag tekin í fullu samráði.

Um áramótin verður staðan tekin á verkefninu. Við þökkum foreldrum, forráðamönnum og starfsmönnum íþróttafélaganna sem og frístundaheimilanna þolinmæðina með von um gott samstarf í vetur.

NÝ AKSTURSÁÆTLUN FRÍSTUNDABÍLSINS 2018

ÞRIÐJUDAGUR 18.SEPTEMBER

Bæjarlína 1
  Yfirfall Ferð 1 Ferð 2 Ferð 3
Kársnesskóli Vallargerði   13:45 14:50 15:30
Kópavogsskóli   13:50 14:55 15:35
Fagrilundur   14:00 15:05 15:45
Skálaheiði Digranesi   14:05 15:10 15:50
Smárinn Fífa   14:13 15:18 15:58
Smárinn Smáraskóli   14:15 15:20 16:00
Lindaskóli   14:20 15:25 16:05
Salaskóli 13:40 14:25 15:30 16:10
Hörðuvallaskóli Strætóstoppistöð 13:42 14:28 15:33 16:13
Kórinn 13:45 14:30 15:35 16:15
Vatnsendaskóli 13:50 14:35 15:40 16:20
Bæjarlína 2
  Ferð 0 Ferð 1 Ferð 2 Ferð 3
Vatnsendaskóli   13:50 14:40 15:45
Kórinn   13:55 14:45 15:50
Hörðuvallaskóli Strætóstoppistöð   14:05 14:46 15:51
Salaskóli   14:10 14:50 15:55
Lindaskóli   14:15 14:55 16:00
Smárinn Fífa   14:20 15:00 16:05
Smárinn Smáraskóli   14:22 15:02 16:07
Skálaheiði Digranes   14:30 15:10 16:15
Fagrilundur   14:35 15:15 16:20
Kópavogsskóli   14:45 15:25 16:25
Kársnesskóli Vallargerði   14:50 15:30 16:30
         

 

You may also like...