fbpx

Íþrótta- og tómstundastyrkur vegna áhrifa af Covid-19

Félagsmálaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir á íþrótta- og tómstundastyrkjum fyrir börn sem koma frá tekjulágum heimilum.    

Markmiðið er að jafna tækifæri til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir eru óháðir hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga.

Við kynningu á styrknum sagði Ásmundur Einar Daðason, félags og barnamálaráðherra: ,,Covid-19 faraldurinn hefur haft gríðarleg áhrif á allt íþrótta- og tómstundastarf í landinu. Þegar þrengir að fjárhag fjölskyldna er mikil hætta á að þær dragi úr þátttöku barna í íþrótta- og tómstundastarfi og það á sérstaklega við um fjölskyldur í neðri hluta tekjudreifingarinnar. Rannsóknir sýna að íþróttir og frístundir hafa forvarnargildi og því er gríðarlega mikilvægt að við gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir brottfall hjá krökkum í íþróttum og tómstundum vegna faraldursins.“

Svona er sótt um styrk

Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og um 13.000 börn eiga rétt á styrknum.

Afreiðsla styrkumsókna er á höndum sveitarfélaga landsins eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Island.is.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar má sjá hér.

Styrkina er m.a. hægt að nýta til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar. Sveitarfélög setja reglur um úthlutun stykjanna og getur fyrirkomulag verið breytilegt. Kynningarefni vegna styrksins hefur verið útbúið á fjölda tungumála.  

Rannsóknir hafa sýnt að mikilvægt er að halda sem flestum börnum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi. Lögð hefur verið áhersla á að ná til sem flestra forráðamanna og hefur því verið komið af stað kynningarátaki á fjölda tungumála um íþrótta- og tómstundastyrkina.

Félagsmálaráðuneytið hefur gert myndbönd á níu tungumálum til kynningar á styrkjunum og má finna þau á linknum hér fyrir neðan:

https://www.youtube.com/channel/UC-Kaj_-DYRuKbbs_PKS2CqQ/videos

You may also like...