Íslandsmót í hópfimleikum





Í apríl var haldið Íslandsmótið í hópfimleikum.
Í 3. flokki Gerplu kepptu tvö lið í stökkfimi. Lið tvö stóð sig mjög vel á dýnu og trampólíni en var aðeins frá sínu besta í gólfæfingum. Lið eitt í stökkfimi varð í öðru sæti samanlagt og Þær stóðu sig sérstaklega vel á trampólíni. Í 3. flokki í hópfimleikum áttum við tvö lið í A-deild. Lið tvö átti ekki sinn besta dag og voru aðeins frá sínu besta en þær voru að prufa mikið af nýjum stökkum og stóðu sig vel í því. Lið eitt varð íslandsmeistari í 3. flokki, liðið stóð sig mjög vel á öllum áhöldum og uppskar íslandsmeistaratitil. Það er búið að vera gaman að sjá breytinguna á 3. flokki í vetur en það hafa verið miklar framfarir hjá öllum flokknum í heild.
Í 2. flokki áttum við tvö kvennalið. Lið tvö endaði í 6. sæti, þær eru búnar að bæta við sig erfiðleika í vetur og eru á góðri leið með sína fimleika. Lið eitt varð Íslandsmeistari eftir að hafa unnið öll þrjú áhöldin með glans. Virkilega flottar stelpur í öðrum flokki sem eru búnar að standa sig vel í vetur.
1. flokkur mætti til leiks með smá laskað lið, veikindi og meiðsli voru að trufla hópinn á þessu móti. Stelpurnar stóðu sig vel í dansinum en áttu erfiðan dag á áhöldunum og enduðu daginn í 4. sæti. Þessi dagur fer í reynslubankann hjá þeim og munu þær án efa koma sterkar til leiks eftir sumarið.
Meistarflokkurinn okkar mættu í góðu stuði á mótið tilbúnar að gefa allt sitt til að landa titilinum í fyrsta skiptið síðan 2017. Liðið var frábært í dýnu, þær lentu öll sín stökk þar og fengu langhæstu einkunn á dýnu á mótinu. Liðið átti einnig frábært trampólín og lentu einnig öll sín stökk og fengu 8.8 í E einkunn sem er ótrúlega há einkunn, Liðið gerði svo nokkur mistök í dansinum sem varð til þess að liðið endaði í öðru sæti en einungis 0.050 stigum frá fyrsta sætinu og Íslandsmeistaratitilinum. Alveg grátlegt en mjög margt gott sem hægt er að taka með inn í undirbúing fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í haust í Finnlandi
Einkunnir: https://live.sporteventsystems.se/score/WebScore/3254?country=isl&year=2025
Myndir: https://gerpla.smugmug.com/2025/Islandsmt–hpfimleikum