Iceland Classic International í Gerplu um helgina
Iceland Classic International fer fram í Versölum um helgina. Alls eru 9 félög sem taka þátt frá fjórum löndum. Keppt er í frjálsum æfingum í senior, junior og youth flokki. Veitt verða verðlaun fyrir liðakeppni, fjölþraut sem og úrslit á einstökum áhöldum.
Hér má sjá helstu tímasetningar fyrir fjölþrautina og liðakeppnina á laugardaginn sem og úrslit á áhöldum á sunnudaginn.
Hvetjum alla til að koma og horfa á fimleika af bestu gerð og styðja við keppendur
Úrslit má finna á Elevian appinu og hér er hlekkur á úrslit á netinu
Úrslit á Iceland Classic International 2026
Myndir: https://gerpla.smugmug.com/2026/Iceland-Classic-International-26

