fbpx

Frábær árangur á Evrópumótinu í áhaldafimleikum

nem

Íslensku landsliðin í áhaldafimleikum karla og kvenna kepptu á Norður Evrópumóti í Írlandi um síðastliðna helgi. Í liðakeppninni á laugardeginum náði kvennaliðið frábærum árangri og lenti í þriðja sæti.

Úrslit á áhöldum voru á sunnudeginum og átti Ísland sex keppendur sem höfðu öðlast þátttökurétt.

Norma Dögg Róbertsdóttir úr Gerplu og Irina Sazonova úr Ármanni náðu þeim frábæra árangri að sigra sitt áhaldið hvor. Norma Dögg á stökki með einkunnina 13,762 og Irina á tvíslá með einkunnina 13,325.

Ísland átti svo annað sætið á stökkinu líka en hún Sigríður Hrönn úr Gerplu var hársbreidd á eftir Normu Dögg með einkunnina 13,712. Irina stóð sig einnig vel á gólfinu og lenti í 3. sæti með einkunnina 13,1.

Eyþór Örn Baldursson úr Gerplu náði frábærum árangri á stökki og lenti í þriðja sæti með einkunnina 13,225.

Norma Dögg Róbertsdóttir keppti einnig á gólfi og Martin Bjarni úr Gerplu keppti til úrslita á stökki þar sem hann var einu sæti frá verðlaunapalli. Árangur Martins Bjarna verður að teljast mjög góður þegar litið er til þess að hann er aðeins 14 ára gamall og var að keppa í fyrsta sinn með fullorðins landsliði Íslands.

Gerpla er stolt af þessum glæsilegu fulltrúum Íslands og óskar keppendum, þjálfurum og öðrum aðstandendum innilega til hamingju með árangurinn.

You may also like...