Félagsgjöld Gerplu
Kæru félagar,
Íþróttafélagið Gerpla hefur sent út valgreiðslukröfur vegna félagsgjalda fyrir árið. Félagsgjöld eru mikilvægur þáttur í rekstri félagsins og gera okkur kleift að halda áfram að þróa öflugt og metnaðarfullt starf fyrir iðkendur á öllum aldri.
Með greiðslu félagsgjalds:
- styður þú beint við starfsemi Gerplu
- öðlast þú atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins
- tekur þú þátt í að móta framtíð félagsins
Félagsgjöld hafa á undanförnum árum verið nýtt til að efla aðstöðu fyrir iðkendur. Nú er markmiðið að nýta fjármagnið í endurnýjun á áhöldum fyrir yngri hópa, þannig að við getum tryggt þeim sem bestu aðstæður til æfinga og framfara.
Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn – saman byggjum við áfram sterkt og öflugt félag


