Bikarinn heim í Kópavog

Stórkostlegur árangur Gerplufólks á Bikarmóti í Hópfimleikum í Egilshöll
Mótið byrjaði á föstudegi og fyrsta lið sem mætti til keppni var 3. flokkur – lið 1, sem keppir í 3. flokki í A-deild.
Stelpurnar áttu mjög gott mót þar sem uppúr stóð frábær frammistaða á dýnunni þar sem þær fengu 15,830 í einkunn og voru 1,7 stigum hærri á því áhaldi en næsta lið á eftir.
Stelpurnar stóðu sig einnig mjög vel á trampólíni en lentu í smá erfiðleikum í dansinum en það kom þó ekki að sök og unnu þær í samanlögðum stigum og hömpuðu Bikarmeistaratitli í 3. flokki kvenna.

Tvö lið í 2. flokki kvenna – bikarmeistarar og miklar framfarir
Lið tvö endaði í 6. sæti, þær fengu hæstu stigin sín í dansi og á fiber og urðu í 4. sæti á báðum áhöldunum en á trampinu voru þær að prófa að keppa með erfiðari stökk en þær hafa gert hingað til. Það er mikilvægt skref að stíga en það vill oft verða til þess að lægri einkunn fæst og það var tilfellið hjá þeim í þetta skipti. Samt sem áður mjög dýrmæt keppnisreynsla að keppa með þessi erfiðu stökk og verða þær betur tilbúnar fyrir næsta mót með þennan erfiðleika.
Lið eitt kom mjög sterkt til leiks. Þær byrjuðu á trampólíni og lentu þær öll sín stökk og fengu 15,4 stig fyrir það eða 1,9 stigum hærra en næsta lið. Næst var það dansinn þar sem þær fengu einnig hæstu einkunn fyrir glæsilegar gólfæfingar. Síðasta áhaldið var dýnustökk sem var engin undantekning þar sem allt gekk upp og enduðu þær mótið með að vinna öll áhöldin og samanlagt með 3,750 stigum á næsta lið á eftir.

Strákarnir okkar hársbreidd frá bikartitli
KKE keppti í sama hluta og 2. flokkur kvenna á föstudeginum og sendi Gerpla eitt lið til keppni. Strákarnir áttu sinn besta árangur í gólfæfingum og enduðu efstir á gólfinu. Þeir eru búnir að gera miklar breytingar á gólfæfingunum sem eru greinilega að skila sér. Þeir áttu flotta dýnu þar sem þeir eru búnir að leggja mikla áherslu á að koma inn meiri erfiðleika og skilaði það þeim öðru sæti á dýnunni. Þeir áttu í smá erfiðleikum á trampólíninu þar sem voru nokkur föll en heilt yfir enduðu þeir í öðru sæti, aðeins rétt á eftir fyrsta sætinu; munurinn var einungis 0,7 stig sem er ótrúlega lítið. Það er greinilegt að keppnin er hörð í þessum flokki og strákarnir okkar að gera flotta hluti.
Jöfn og góð frammistaða í þriðja flokki í stökkfimi
Á laugardeginum var svo komið að keppni í 3. flokki í stökkfimi en þar átti Gerpla tvö lið.
Bæði lið áttu góðan dag á dýnu og trampólíni en voru með aðeins lægri einkunn í dansi.
3. flokkur – lið þrjú endaði í 3. sæti á mótinu og 3. flokkur – lið fjögur endaði í 4. sæti. Það er mjög flottur árangur hjá okkar stelpum og verður gaman að sjá hvað þær gera á næsta móti.
Brons í 3. flokki í B-deild
Á sunnudag var fyrst keppt í 3. flokki í B-deild og áttum við eitt lið þar: 3. flokkur – lið tvö.
Þær mættu vel stemmdar til leiks og voru að standa sig vel á öllum þremur áhöldunum. Besta áhaldið þeirra var dýna þar sem þær voru með næsthæstu einkunn og þar á efir voru gólfæfingarnar með þriðju hæstu einkunnina í flokknum. Samanlagt enduðu þær í 3. sæti á mótinu sem er mjög flottur árangur.


Bikarmeistarar í meistaraflokki
Gerpla sendi eitt kvennalið til keppni í meistaraflokki. Lið Gerplu varð síðast Bikarmeistari í meistaraflokki árið 2023 en á síðasta ári töpuðu þær með minnsta mögulega mun 0,05 stigum. Þær voru því mættar mjög ákveðnar til leiks. Stelpurnar byrjuðu á dýnu og komu inn af fullum krafti og fengu hæstu einkunn mótsins á dýnunni. Næst var það trampólínið og gekk það frábærlega, einungis eitt fall og framkvæmdareinkunn upp á 8,250 stig og uppskáru einnig hæstu einkunn á trampólíninu á mótinu. Þá var einungis dansinn eftir og má heldur betur segja að þær hafi klárað daginn með glæsibrag. Þær fengu 8,3 í framkvæmdareinkunn og voru með hæstu einkunn á mótinu. Þær unnu því öll áhöldin og urðu Bikarmeistarar með 2,875 stiga mun á næsta lið. Þær stóðu þétt saman sem lið allan daginn og gleðin og ánægjan geislaði af þeim uppskáru þær verðskuldaðan og sannfærandi sigur og bikarmeistaratitil.

Lokaundirbúningur fyrir Norðurlandamót hjá 1. flokki
Seinasti hluti dagsins var svo keppni í 1. flokki og þar átti Gerpla eitt kvennalið og eitt mixlið.
Bæði þessi lið eru í lokaundirbúningi sínum fyrir Norðurlandamót unglinga sem fer fram í Noregi 18. apríl næstkomandi.
Kvennaliðið hóf leik á trampólíni og áttu stelpurnar mjög gott trampólín og lentu öll stökk nema eitt. Næst var komið að dansinum og þar voru stelpurnar einnig mjög flottar en fengu smá frádrætti fyrir mómentin sín. Þegar kom að síðasta áhaldinu var ljóst að stelpurnar þyrftu að eiga óaðfinnanlega frammistöðu til að verða Bikarmeistarar. Stelpurnar lentu öll stökkin sín en náðu hins vegar ekki alveg öllum þeim stigum sem þurfti og þurftu að sætta sig við að vera í öðru sæti, 0,550 stigum á eftir 1. sætinu. Samt sem áður mjög flott mót hjá þeim og mjög góður undirbúningur fyrir stóra verkefnið í næsta mánuði. Spennandi að fylgjast með þessu flotta liði.
1. flokkur – mix byrjaði á trampólíninu. Þau gerðu smá mistök í fyrstu umferð en áttu svo góða aðra umferð en gerðu svo smá mistök á hestinum. Í dansinum stóðu þau sig best og fengu hæstu einkunn í sínum flokki þar og fengu 7.5 í framkvæmdareinkunn sem er frábær árangur. Á dýnunni stóðu þau sig mjög vel og lentu sautján af 18 stökkum. Sama og hjá kvennaliðinu þá var þetta mjög flottur undirbúningur fyrir Norðurlandamótið í apríl og ekkert nema bjart framundan hjá þessu flotta liði.

Frábær helgi hjá Gerplufólki
Frábær helgi hjá okkar fólki og við erum hrikalga stolt af okkar iðkendum og þjálfurum þeirra. Svona árangur er ekki tekinn upp úr götunni heldur liggur að baki mikill og strangur undirbúningur jafnt hjá iðkendum og þjálfurum.

