fbpx

Allt skipulagt íþróttastarf leggst af fram yfir páska!

Það er með miklum trega að við verðum að tilkynna að allt íþróttastarf leggst af í Gerplu til og með 13.apríl 2020. Í gær komu tilmæli frá sóttvarnarlækni;

Sóttvarnalæknir vill árétta að í auglýsingum heilbrigðisráðherra um samkomubann og um takmarkanir á skólastarfi er fjallað um að nálægð einstaklinga verði ekki minni en tveir metrar ef því er við komið. Einnig er ljóst að með vísan í leiðbeiningar um almennar sóttvarnaráðstafanir t.d. varðandi hreinlæti og smitleiðir að sameiginleg notkun á hverskonar búnaði til íþróttaiðkunar boltum, dýnum, rimlum, handlóðum, skíðalyftum og margs fleira án góðrar sótthreinsunar á milli notkunar einstaklinga er mjög varasöm og ekki í anda fyrirmæla um sóttvarnir. Því er augljóst að í flestum íþróttum er nánast ómögulegt að æfa eða keppa. Sóttvarnalæknir vill beina því til Íþrótta- og ólympíusambands Íslands að, líkt og gert hefur varðandi börn og ungmenni, að tekið verði hlé í æfingum og keppnum á vegum sambandsins og aðildarfélaga þeirra á meðan samkomubann varir.“ (birt á Facebook síðu Almannavarna).


í framhaldi af þessum tilmælum sendi ÍSÍ og UMFÍ eftirfarandi tilkynningu til íþróttafélaganna í landinu;

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og UMFÍ treysta því að öll íþróttahreyfingin muni fara að þessum afgerandi tilmælum og að allt íþróttastarf falli tímabundið niður.  Það er augljóslega ekki auðvelt fyrir íþróttahreyfinguna en við þessar aðstæður er mjög mikilvægt að þjóðin standi saman sem einn maður og að íþróttahreyfingin sýni fulla samstöðu og ábyrgð
 
Við viljum jafnframt minna á mikilvægi þess að landsmenn haldi áfram að hreyfa sig þrátt fyrir að skipulagt íþróttastarf sé ekki til staðar. Þá er mikilvægt að félögin haldi áfram að þjónusta sína iðkendur með þeim hætti sem mögulegt er, með fjar- og heimaæfingum.

Þjálfarar Gerplu munu áfram vera í sambandi við sína iðkendur í gegnum sportabler og eða tölvupóst og biðjum við ykkur að aðstoða börnin, þar sem við á, við að framkvæma æfingarnar og taka þátt með þeim. Það eru krefjandi tímar framundan fyrir okkur öll og mikilvægast af öllu á tímum sem þessum að hreyfa sig til að halda líkamlegri og andlegri heilsu í lagi.
Við komumst öll saman í gegnum þennan skafl og verðum enn sterkari en ella og öll sigurvegarar! 

Við erum Gerpla! 
Með ósk um góðar stundir og baráttukveðjur
Starfsfólk Gerplu

You may also like...