Þrepamót í 1.-3. þrepi
Þrepamót FSÍ í 1.-3 þrepi fór fram um helgina 27.-28. febrúar. Keppt var í íþróttamiðstöðinni Björk í Hafnarfirði. Iðkendur Gerplu áttu virkilega flott mót og var gaman að fylgjast með þeim uppskera ríkulega eftir miklar æfingar frá síðasta móti og góður undirbúningur fyrir komandi mótatímabil.
Keppnin hófst á föstudeginum hjá stúlkunum okkar í 3. Þrepi 12 ára og yngri. Stúlkurnar mættu einbeittar til leiks og stóðu sig frábærlega, margar að stíga sín fyrstu skref í keppni í 3. Þrepi og var virkilega gaman að fylgjast með þeim á stóra sviðinu. Iðkendur okkar röðuðu inn verðlaunum um helgina og byrjum við á 3. Þrepi 11 ára og yngri hjá stúlkunum. Diljá Björt Axelsdóttir nældi sér í silfurverðlaun í fjölþraut, sigraði æfingar á tvíslá með glæsibrag, fékk silfurverðlaun fyrir æfingar á slá og bronsverðlaun á gólfi. Í flokki 12 ára áttum við sex stúlkur sem flestar voru að keppa í fyrsta skipti í 3. Þrepi. Glæsileg frumraun hjá þeim og framtíðin björt.
Á laugardagsmorgun var keppt í 3. Þrepi karla og 3. Þrepi kvenna 13 ára og eldri. Gerpla sendi til leiks átta stúlkur og sjö drengi í tvo aldurshópa, 3. Þrep 12 ára og yngri og 3. Þrep 13 ára og eldri. Frábært mót hjá okkar iðkendum. Arnar Bjarki Unnarsson sigraði fjölþrautina í flokki 12 ára og yngri, fékk síðan gullverðlaun fyrir æfingar á gólfi, stökki og bronsverðlaun fyrir bogahest, Maggi Þór Halldórsson fékk silfurverðlaun í fjölþraut, fékk síðan silfurverðlaun á gólfi, bogahesti og tvíslá. Hjálmar Bjarni Kristmannsson fékk bronsverðlaun í fjölþraut, hann fékk einnig silfurverðlaun á stökki og sigraði æfingar á svifrá. Arnar Logi Sigurðsson sigraði æfingar á bogahesti örugglega og fékk bronsverðlaun á tvíslá. Einar Hrafn Sigurðsson varð í fjórða sæti í fjölþraut og sigraði æfingar á tvíslá örugglega og fékk bronsverðlaun á svifrá. Alexander Húgó Baldursson fékk silfurverðlaun á hringjum. Gerpla átti svo einn keppanda í 3. Þrepi 13 ára og eldri, hann Jósep Natan Jensson, hann fékk bronsverðlaun fyrir æfingar sínar á bogahesti.
Stúlkurnar kepptu í sama hluta í 3. Þrepi 13 ára og eldri. Einnig glæsilegur dagur hjá þeim. Amalía Ívarsdóttir fékk siflurverðlaun í fjölþraut, á stökki og sigraði æfingar á jafnvægisslá og gólfi. Klara Hlín Þórsdóttir sigraði einnig æfingar á gólfi. Berglind Helga Hauksdóttir var í 5. Sæti í fjölþraut og fékk svo bronsverðlaun á tvíslá. Glæsilegur árangur hjá iðkendum okkar í 3. Þrepi.
Eftir hádegi á laugardeginum mættu til leiks keppendur í 1.-2 þrepi karla og kvenna. Gerpla átti 16 keppendur í þessum hluta. Strákarnir í 1. Þrepi voru þrír talsins í tveim aldursflokkum, 14. ára og yngri og 15. ára og eldri. Í 1.þrepi 14 ára og yngri var það Tómas Andri Þorgeirsson sem sigraði fjölþraut, bogahest, stökk, tvíslá og svifrá, fékk silfurverðlaun fyrir gólfæfingar og hringi. Kári Arnarson fékk silfurverðlaun í fjölþraut, bogahesti, stökki, tvíslá og svifrá. Hann sigraði æfingar á gólfi og í hringjum. Tadas Eidukonis var eini keppandinn í flokki 15. ára og eldri og sigraði fjölþrautina og öll áhöld. Í 2. Þrepi karla var keppt í tveim aldursflokkum. Gerpla átti keppendur í flokki 14 ára og eldri. Hrannar Már Másson fékk silfurverðlaun í fjölþraut, á hringjum og á svifrá, hann sigraði síðan æfingar á gólfi og á stökki, Ísak Þór Ívarsson sigraði æfingar á svifrá og fékk bronsverðlaun á gólfi og stökki. Róbert Smári Vilhelmsson, fékk silfurverðlaun á bogahesti og bronsverðlaun á tvíslá og svifrá.
Stúlkurnar átti einnig frábæran dag í 1.-2. Þrepi. Í 1. Þrepi 14. ára og eldri var það Saga Ólafsdóttir sem fékk silfurverðlaun í fjölþraut, á tvíslá og sigraði æfingar á gólfi með glæsilegar æfingar. Í flokki 13 ára og yngri áttum við tvær stúlkur, Ísabella Benonýsdóttir sigraði fjölþrautina, stökkið, slánna og gólfið, fékk svo bronsverðlaun fyrir æfingar á tvíslá. Berglind Sara Erlingsdóttir fékk bronsverðlaun í fjölþraut, á slá og á gólfi, silfurverðlaun á stökki, og sigraði æfingar á tvíslá. Í 2. Þrepi 12 ára og yngri sigraði Tanja Mist Þorgeirsdóttir æfingar á stökki og fékk silfurverðlaun á slá. Í flokki 13. ára og eldri áttum við fjórar stúlkur sem voru að keppa í fyrsta skipti í 2. Þrepi. Glæsileg frumraun hjá þeim og framtíðin björt.
Frábær dagur hjá okkar keppendum um helgina, innilega til hamingju keppendur, þjálfarar og foreldrar með frábæran árangur. Við erum spennt fyrir keppnistímabilinu.




Áfram Gerpla!

