fbpx

Sumarnámskeiðið Fimleikar- og íþróttafjör

Fimleika – og íþróttafjör

Íþróttafélagið Gerpla stendur fyrir fjölbreyttu og skemmtilegu íþrótta- og tómstundastarfi í allt sumar. Starfið fer fram í glæsilegri aðstöðu félagsins, Íþróttamiðstöðinni Versölum auk útisvæða í nágrenni þess. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem lögð verður áhersla á fimleika, sund og aðrar íþróttir ásamt útiveru. Mikil áhersla verður á fjölbreytni á námskeiðunum og að hvert námskeið sé skemmtileg upplifun fyrir barnið.

Námskeiðin eru fyrir börn fædd á árunum 2007 – 2011, nánar tiltekið þau sem eru að fara í skóla að hausti og upp í 10 ára

Námskeið 1: 7.júní – 9.júní (3 dagar)
Námskeið 2: 12.júní – 16.júní
Námskeið 3: 19.júní – 23.júní
Námskeið 4: 26.júní – 30.júní
Námskeið 5: 24.júlí – 28.júlí
Námskeið 6: 31.júlí – 4.ágúst
Námskeið 7: 8.ágúst – 11.ágúst (4 dagar)
Námskeið 8: 14.ágúst – 17.ágúst (4 dagar)

Á námskeiðunum er skipulögð dagskrá frá kl. 09.00 – 16.00. Boðið er upp á gæslu án aukakostnaðar frá kl. 08.00 – 09.00 og frá kl. 16.00 – 17.00. Börnin mæta með eigið nesti, morgunhressingu, hádegismat og síðdegishressingu.

Verð fyrir 5 daga námskeið er 14.500 kr, fyrir 4 daga námskeið kostar 11.600 kr og fyrir 3 daga námskeið kostar 8.700 kr . Veittur er 20% systkinaafsláttur. Athugið að fjöldi barna á hverju námskeiði verður takmarkaður.

Skráningar hefjast 1. maí og fara fram á greiðslusíðu Gerplu gerpla.felog.is.

 

Yfirumsjón með starfinu í sumar hefur Stefanía Eyþórsdóttir íþróttafræðingur og deildarstjóri fimleikadeildar, netfang: stefaniaey@gerpla.is.

 

 

 

 

You may also like...