fbpx

Sumarnámskeiðið Fimleikar- og íþróttafjör

Íþróttafélagið Gerpla stendur fyrir fjölbreyttu og skemmtilegu íþrótta- og tómstundastarfi í allt sumar. Starfið fer fram í glæsilegri aðstöðu félagsins, Íþróttamiðstöðinni Versölum auk útisvæða í nágrenni þess. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem lögð verður áhersla á fimleika, sund og aðrar íþróttir ásamt útiveru. Mikil áhersla verður á fjölbreytni á námskeiðunum og að hvert námskeið sé skemmtileg upplifun fyrir barnið.

Námskeiðin eru fyrir börn fædd á árunum 2012 – 2008, nánar tiltekið þau sem eru að fara í skóla að hausti og upp í 10 ára

Námskeið 1: 5.júní – 8.júní (4 dagar)
Námskeið 2: 11.júní – 15.júní
Námskeið 3: 18.júní – 22.júní
Námskeið 4: 25.júní – 29.júní
Námskeið 5: 2.júlí – 6.júlí
Námskeið 6: 30.júlí – 3.ágúst
Námskeið 7: 7.ágúst – 10.ágúst (4 dagar)
Námskeið 8: 13.ágúst – 16.ágúst (4 dagar)

Á námskeiðunum er skipulögð dagskrá frá kl. 09.00 – 16.00.
Boðið er upp á gæslu án aukakostnaðar frá kl. 08.00 – 09.00 og
frá kl. 16.00 – 17.00.

 

Verð fyrir 5 daga námskeið er 15.900 kr,
fyrir 4 daga námskeið kostar 12.720 kr.
Veittur er 20% systkinaafsláttur.
Athugið að fjöldi barna á hverju námskeiði verður
takmarkaður.

Skráningar hefjast 1. maí og fara fram á greiðslusíðu Gerplu
gerpla.felog.is.

 

Yfirumsjón með starfinu í sumar hefur Stefanía Eyþórsdóttir íþróttafræðingur og deildarstjóri fimleikadeildar, netfang: stefaniaey@gerpla.is.

 

You may also like...