Smáþjóðaleikar
Smáþjóðaleikarnir fóru fram í Andorra í lok maí. Gerpla átti fimm keppendur í liðum Íslands á leikunum.
Fimleikasambandið sendi tvö lið til leiks á leikana karla- og kvennalið. Í karlaliðinu voru Gerpludrengirnir Kári Pálmason, Jónas Ingi Þórisson og Sigurður Ari Stefánsson. Í kvennaliðinu voru það Kristjana Ósk Ólafsdóttir og Rakel Sara Pétursdóttir.
Kvennaliðið gerði sér lítið fyrir og fékk silfurverðlaun í liðakeppni, Kristjana Ósk varð síðan hæst af Íslensku stúlkunum í fjölþraut. Drengirnir áttu flott mót og lentu í fjórða sæti í liðakeppninni. Einnig var keppt til úrslita á áhöldum. Jónas Ingi Þórisson komst í úrslit á þremur áhöldum, Kári komst í úrslit á fjórum áhöldum og Sigurður Ari á tveimur. Rakel Sara komst svo í úrslit á þremur áhöldum.





Jónas Ingi sigraði gólfæfingarnar með glæsilegum æfingum og bætti svo bronsi í safnið á bogahestinum. Rakel Sara framkvæmdi tvö glæsileg stökk og uppskar silfurverðlaun.
Frábærir Smáþjóðaleikar hjá okkar fólki og erum við virkilega stolt af þeim. Næstu leikar verða haldnir í Monaco í 3.-8. maí árið 2027.