Flórídanamót Ármanns
Flórídanamót Ármanns fór fram um síðustu helgi í Laugardalnum. Mótið er nýtt á nálinni hjá þeim í Ármanni og er frábær viðbót inn í mótaskrá á Íslandi fyrir yngstu iðkendur okkar í keppnisdeildinni.
Gerpla sendi glæsilega fulltrúa á mótið í 6. Þrepi, 5. Þrepi og 4. Þrepi hjá stúlkunum og í 6. Þrep hjá piltunum.
Við erum ótrúlega stolt af öllum okkar iðkendum sem sýndu glæsilega takta um helgina, keppendur okkar áttu jákvæða upplífun af mótinu og allir spenntir að taka þátt á fleiri mótum í vetur.
Við þökkum Ármanni fyrir ótrúlega skemmtilegt mót, foreldrum fyrir stuðninginn í stúkunni og óskum keppendum og þjálfurum til hamingju með glæsilegt mót
Úrslit mótsins má finna hér: Live Score – Sport Event Systems










