Chasetag á Akranesi og Speed Run keppni Gerplu
Chase tag keppnin átti sér stað helgina 18.- 19. apríl á Akranesi og parkour liðin okkar kepptu sunnudaginn 19. apríl.
Margir stígu sín fyrstu skref í keppninni og náðu að njóta sín en þessi Chase tag keppni hefur verið haldin seinustu 3 árin og voru einnig nokkrir sem hafa reynsluna að hafa keppt þar áður.
Lið 1 komst því miður ekki áfram í næsta riðli en lið 2 lenti í 4 sæti.
Unglingaliðið lenti í 2. sæti glæsilegur árangur hjá þeim. Þeir eru ákveðnir eftir þessa keppni að ná fyrsta sæti á næsta ári.


Góð stemmning á fyrstu Speed Run keppni Gerplu
Gaman er að segja frá því að Parkour-deild Gerplu hélt sína fyrstu Speed Run keppni laugardaginn 25. apríl. Keppnin var innanfélagsmót og myndaðist skemmtileg stemning þar sem iðkendur fengu tækifæri til að spreyta sig á hraða, tækni og útsjónarsemi í skemmtilegri braut.
Alls tóku 18 iðkendur þátt og var mótinu skipt upp í tvo hluta. Í fyrri hluta náði Nikulás Ben 1. sæti með besta tíma sinn, 16,90 sekúndur.
Í seinni hluta setti Viktor Motybel besta tímann, 16,83 sekúndur. Til hamingju með frábæran árangur, strákar!
Keppnisdeginum lauk á því að foreldrum var boðið að koma og prófa parkour-þrautina með iðkendum—sem sló heldur betur í gegn. Að lokum fengu allir pítsur og safa. Mikilvægast af öllu var þó að allir stóðu sig einstaklega vel, hvöttu hvert annað áfram og höfðu virkilega gaman af.
Þetta er svo sannarlega komið til að vera og verður endurtekið á næstu önn.







