6 Bikarmeistaratitlar í hús
Helgina 21.-22. mars fór fram Bikarmót FSÍ í áhaldafimleikum í umsjón Fjölnis. Gerpla sendi fjögur lið til leiks í frjálsum æfingum karla og kvenna, en sjö lið í þrepum.
Gerplukeppendur mættu einbeittir til leiks og uppskáru heldur betur eftir þrotlausar æfingar síðustu mánuði.
Gerpla 1 í karlaflokki urðu bikarmeistarar með yfirburðum en Gerpla 2 varð í 3. sæti. Kvennalið Gerplu 1 sigraði kvennakeppnina með yfirburðum með glæsilegum æfingum sínum. Gerpla 2 endaði svo í 3. sæti, eingöngu með 0.6 stiga mun á 2. sætið.
Gerpla 1 karla skipaði, Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson, Martin Bjarni Guðmundsson, Atli Snær Valgeirsson, og Sigurður Ari Stefánsson. Gerpla 2 karla skipaði, Arnór Snær Hauksson, Kári Hjaltason, Kári Pálmason, Ragnar Örn Ingimarsson og Eysteinn Daði Hjaltason.
Gerpla 1 kvenna, Hildur Maja Guðmundsdóttir, Thelma Aðalsteinsdóttir, Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Agnes Suto og Rakel Sara Pétursdóttir. Gerpla 2 kvenna, Kristjana Ósk Ólafsdóttir, Elfa María Reynisdóttir, Ísabella Maack Róbertsdóttir, Margrét Dóra Ragnarsdóttir og Sólný Inga Hilmarsdóttir

Í 3. þrepi átti Gerpla tvö lið í kvennakeppninni og eitt í karlakeppninni. Gerpla sigraði karlakeppnina. Í kvennakeppninni varð Gerpla 1 í þriðja sæti í A keppni og lið Gerplu 2 varð í 1. sæti í B keppninni. Í Gerplu 1 voru það, Amalía Ívarsdóttir, Mía Silness, Aníta Sif Sigurgeirsdóttir, Kolbrún Sara Davíðsdóttir og Berglind Helga Hauksdóttir. Lið Gerplu 2 í B keppni, Karen Antonía Heiðarsdóttir, Arpita Gurung, Lísa Marie Karin Persson Gísladóttir, Unnur Aðalsteinsdóttir, Apríl Lilja Aronsdóttir og Victoria Nazarova. Lið Gerplu 1 karla voru það Arnar Logi Sigurðsson, Arnar Bjarki Unnarsson, Einar Hrafn Sigurðsson, Alexander Hugo Baldursson, Maggi Þór Halldórsson og Hjálmar Bjarni Kristmannsson.



Gerpla átti eitt lið í 2. þrepi kvenna og eitt í karlakeppninni. Drengirnir gerðu sér litið fyrir og urðu bikarmeistarar og kvennaliðið lenti í 4. sæti. Kvennaliði skipaði, Arna Sóley Jósepsdóttir, Ingibjörg Lea Plédel Eymarsdóttir, Jóhanna Bryndís Andradóttir, Tanja Mist Þorgeirsdóttir og Valgerður Svana Halldórsdóttir. Karlaliðið skipaði Ísak Þór Ívarsson, Hrannar Már Másson og Róbert Smári Vilhelmsson. Gerpla átti eitt lið í 1. þrepi karla og eitt lið í 1. Þrepi kvenna og urðu bæði liðin okkar bikarmeistarar. Karlaliðið skipaði Tómas Andri Þorgeirsson, Tadas Eidukonis og Kári Arnarson. Kvennaliðið skipaði, Aníta Eik Davíðsdóttir, Berglind Sara Erlingsdóttir, Ísabella Benonýsdóttir, Saga Ólafsdóttir og Rakel Ásta Egilsdóttir.

Við erum virkilega stolt af öllum okkar keppendum og þjálfurum sem eru að skila virkilega flottri vinnu – næst á dagskrá er svo Íslandsmót fyrir þá sem hafa náð lágmörkum eftir 4 vikur.
Áfram Gerpla!

