GK mót Special Olympics

Um helgina fór fram okkar fyrsta GK mót Special Olympics. Við settum mótið upp tvíþætt þar sem var keppt í áhaldafimleikum kvenna og karla og nútímafimleikum með borða, gjarðir, keilur og sippuband.

Stelpurnar sem kepptu í nútímafimleikum koma frá Öspinni og æfa þær í Ármanni og tóku þær vel í að taka þátt á fyrsta GK-móti Gerplu sem var einnungis haldið fyrir börn og fullorðna með fatlanir.  

Báðir grunnhópar Gerplu voru rosalega ánægðir með mótið sérstaklega þar sem þau fengu salinn út af fyrir sig og gátu keppt við minna áreiti á styttri tíma. Stemningin var bæði skemmtileg og notaleg.

Við gáfum verðlaun fyrir fjölþraut í hverju level í hverri keppnisgrein. Levelin sem var keppt í eru; Level B, Level C og Level 1. Keppt er eftir reglum  Specialolympics en þær eru alþjóðlegar og er keppt eftir þeim um allan heim.  Allir keppendur fóru heim með verðlaun og bros á vör.

Mótið í heild sinni gekk mjög vel og við hlökkum til að geta haldið það aftur á næsta ári

Myndir: https://gerpla.smugmug.com/2026/GK-mot-i-Special-Ol

You may also like...