Fimleikar fyrir fullorðna

Við bjóðum upp á tvo hópa þar sem lagt er stund á fimleika fyrir fullorðna. Það eru eftirfarandi hópar:

GGG – Þessi hópur er áhaldafimleikamiðaður hópur en lagt er mikla áherslu á fimleikaþrek og styrktaræfingar í fimleika umhverfi. Jafnframt eru grunnæfingar í almennum og áhaldafimleikum æfðar hér
Æfingar á vorönn 2026 verða á þriðjudögum og fimmtudögum í Versölum kl. 18:00-19:30 og föstudögum í Vatnsenda 18:00-19:30.

Fullorðins Parkour – æfir á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19:30-21:00 í Versölum og á föstudögum klukkan 18:30-20:00 í Vatnsenda.

Verð fyrir vorönn 2026
GGG 73.110kr Parkour 88.710kr
Skráningar Gerpla | SHOP | Sportabler

Klippikort
Hægt er að kaupa klippikort í fullorðinstímana.
10 skipti eru á 29.000kr. og 30 skipti eru á 59.500kr. Klippikortin gilda í eitt ár frá kaupdegi.
Hægt er að kaupa klippikortin hér í gegn: Klippikort 2025-2026

Öllum er velkomið að koma í einn prufutíma, en þá þarf að senda póst á deildastjóra (rosa@gerpla.is) og láta vita af sér. Hver prufutími kostar 1500kr og greiðist í afgreiðslu Gerplu Versölum eða með millifærslu á 0536-26-3325 kt.700672-0429 ef mætt er í Vatnsenda.